Annað tækifæri
James Patterson, Andrew Gross
Audiobook • 09:11:54 • Oktober 2023
Kvennamorðklúbburinn kemur aftur saman, nú til að takast á við hættulegri glæpamann en þær hafa nokkru sinni áður komist í tæri við.Röð morða í San Francisco virðast ótengd í fyrstu en Lindsay Boxer rannsóknarlögreglukona skynjar fljótt rauða þráðinn sem tengir þau saman. Hún hóar því í Kvennamorðklúbbinn; blaðakonuna Cindy Thomas, aðstoðarsaksóknarann Jill Bernhardt og réttarmeinafræðinginn Claire Washburn og saman uppgötva þær hvað fórnarlömb morðanna eiga sameiginlegt. Morðinginn er með þeim grimmdarlegri sem þær hafa tekist á við, bæði saman og hver í sínu lagi. Mun þeim takast að koma höndum yfir hann? Árið 2007 voru gerðir sjónvarpsþættir sem byggðu á bókunum og báru sama nafn.